Music World
 
Find Artists:
 
 
 
Russian versionSwitch to Russian 
Sálin Hans Jóns Míns




Music World  →  Lyrics  →  S  →  Sálin Hans Jóns Míns  →  Lyrics  →  Tár eru tár

Sálin Hans Jóns Míns Lyrics

"Tár eru tár" lyrics


Þú getur hallað þér undan og haldið að þér
höndum og þóst ekki þekkja mig.
Hreiðrað svo um þig á bak við litað gler.

Og undir farða svo geturðu falið það sem
fýsir þig ekki að ber´á torg.
Samt er það eitt sem þú aldrei felur:
Brothættar tilfinningar.

Tár eru tár — sár eru sár.
Það gildir einu hvort er;
gleði eða sorg.
Tár eru tár, - og verð´um ókomin ár.
Þrátt fyrir dulbúið þel
streyma þau og þú heldur þeim ekki inni.

Þú getur sveipað þig alla í silkiklæði,
safíra borið á fingrum þér,
—setið og látið sem ekkert ami að.

En þó að allt sé með felldu á yfirborði
—andlitið fagurt og gallalaust,
þá eru þó hinir breysku kenndir
alltaf samar við sig.

Tár eru tár — sár eru sár.
Það gildir einu hvort er;
gleði eða sorg.
Tár eru tár — og verð´um ókomin ár.
Þrátt fyrir dulbúið þel
streyma þau og þú heldur þeim ekki inni.

blog comments powered by Disqus




© 2011 Music World. All rights reserved.