Music World
 
Find Artists:
 
 
 
Russian versionSwitch to Russian 
Nýdönsk




Music World  →  Lyrics  →  N  →  Nýdönsk  →  Lyrics  →  Strákarnir Stofnuðu Hljómsveit

Nýdönsk Lyrics

"Strákarnir Stofnuðu Hljómsveit" lyrics


Sören, Palle, Knud og jeg stofnuðum hljómsveit.
Það var þykkni og þoka á Þykkvabæjaströndum á kvöldin.
Með páku og poka og þriggjahljómaþrígrip að þeysa
á kartöfluslóðir við sveitunga svera að keppa.
Í kapphlaupi við tímann og klukkuna á Hvoli við keyrðum.
Í leynimúla við lokkandi ljósamynstur.
:,: Splæst var á línuna sóda-poppi og pylsum :,:
Viðlag:
Strákarnir stofnuðu hljómsveit.
Þeir gengu bar' allt of langt.
Á leiðinni miðri mótormaskínan mæddist
nú þykkbotna skó á brauðfætur fast voru bundnir.
Gengum hvar Göngu-Hrólfur hrasaði forðum
og séra Þangbrandur þrumaði í krossfara kristnum orðum.
Viðlag...
Snögglega snældunni snérum við snarlega við
í fimbulfögrum fjallasal við sáum
hvar Rúnar rösklega með rafmagnsgígjuna reið
og beljandi bassinn og tromman frá Bárðadal bárust.
Viðlag...

blog comments powered by Disqus




© 2011 Music World. All rights reserved.