Music World
 
Find Artists:
 
 
 
Russian versionSwitch to Russian 
Nýdönsk




Music World  →  Lyrics  →  N  →  Nýdönsk  →  Lyrics  →  Skynjun

Nýdönsk Lyrics

"Skynjun" lyrics


(Eyrað)
Hölluðum hurðum er best að loka.
Þó veggirnir hafi ekki eyru
eru eyru á bak við.
Þau heyra þig hvísla og klappa af kæti.
Greina jafnvel aldur þinn af hljómfalli.
(Augað)
Þú getur heyrt fyrir horn
í því sem er fjarri
hlustað á tónlist og samtöl við aðra.
En ég get séð hendur sem handleika fiðlur
og hljómsveitarstjórann sem telur í.
Halla undir flatt
horfi lóðréttum augum á
fingurna strjúkast við streng.
Tónarnir nálgast
hlustirnar taka við.
Skynjunin er ekki lengur mín.
(Eyrað)
Hlusta á fiðlurnar byrja með léttum dansi.
Litla tromma tifar, túbur leysa vind
Þrumandi bassar og tónlistin hækkar
breytist í orrustugný hámarkinu er náð.
Hljómurinn fellur,
hlusta láréttum eyrum á
fingurna sleppa sínum streng.
Tónarnir deyja,
sjónin tekur við.
Skynjunin er ekki lengur mín.

blog comments powered by Disqus




© 2011 Music World. All rights reserved.